Sundferð

| |
Klukkan var 12:45 og ég var í draumaheimi mínum með fögrum konum og vínberjum, ég lá á bekk meðan ég var mataður af dívunum í aldingarði einum þar sem sólin skein og veður var gott....En þá var öskrað "MAGNÚS, LAUFEY ER KOMINN" Ég fór í afanáttsloppinn og reyndi að muna leyðina að útidyrahurðinni...og jú Laufey var þar með bros á vör og sagði að mig minnir eitthvað " bal bla bla SUND bla bla bla ÞÚ bla bla bla VIÐ SJÁUMST ÞÁ Á EFITR ÞAR" Eftir þetta skrítna samtal fór ég inní eldhús til að fá mér vínber...en nei þau voru ekki til:( Þannig að ég fékk mér bara kókópops með mjólk. Þá var komið að því að klæða sig í.....ég fór þá rakleiðis inní stofu þar sem nærbrækunar blöstu við mér. Ég skellti mér í þær....ahhhh ég var kominn heim..Heitar og allt. svo fann ég einhverja lafra hér og þar um húsið sem ég festi á mig til að hilja nekt mína. Eftir þetta littla ævintýri var kominn tími til að fara í sund..og það gerði ég.

Engin ummæli: