niður um gír?

| |
Hvað gerir þú þegar þú sérð ungling vera mála gulu línurnar sem eru alstaðar í öllum bænum og borgum? Hægirðu á þér? Reynirðu að sveiga framhjá? Eða klessiruðu petalann við gólfið og skiptir niður um gír? ég hef nefnilega lent í því að fólk á stórum bílum og þá helst karlmenn á aldrinum 19-30 hafa reynt að sýna mér hvað þeir séu kúl, með því að láta spegilinn strjúkast við mig á 4x leyfilegum hraða....Oft hefur þetta gerst og var það sérstaklega slæmt í dag. Mig langaði hálfpatinn að stökkva fyrir einn svona kúlista og sýna honum hverjar afleyðingarnar geta verið með svona óendanlegri heimsku og vanþroska, en lét mér það þó ekki eftir vegna heilsufarsástæðna. Það er eins og fólk geri bara ráð fyrir því að ég hlaupi frá í hvert skipti sem það kemur akandi..OG hvað er málið með þetta fólk sem er mætt kl 11.00 á rúntin hér á Selfossi með græjurnar í botni og ekur um ALLANN daginn á bílum sínum? Hefur þetta fólk ekki skyldum að gegna? Er það ekki með vinnu? Hver borgar bensínið á bílinn? Það er alveg ótrúlegt hvað sumir nenna að rúnta EINIR svo klukkutímunum skiptir! Svo ætla ég að lokum að biðja alla leikskóla og foreldra sem eru í gönguferð með börnin að benda ekki á mig eins og ég sé eitthvað skemmtiatriði or some! " sjáið krakkar! hann er að máááááááááááááááála" svo vil ég ekki að fólk noti flautuna á mig! HALLÓ ég er að vinna hérna, ekki mér að kenna skilurðu! og ég hverf ekki þótt þú flautir.....Góðar stundir

Engin ummæli: