| |
Ég, Heimir og Hjalti ætlum að skella okkur hringinn um landið um helgina. Leggjum af stað á eftir og verður fyrsti viðkomustaður okkar Egilstaðir, heimabær Laufeyjar. Hún er einmitt að halda upp á afmælið sitt á morgun í einhverjum bát. Verður örugglega gaman. Ég er ekki byrjaður að taka mig til, enda ætla ég að halda fast í mínar hefðir og gera það á leið út úr húsi. Ég hefði samt viljað gera þetta að smá keppni, taka bara með okkur 1000 kall á mann, fyrir utan bensínpeninga, eitt brauð, hreinar nærbuxur, og vasahníf. Þarf líka að raka mig og helst fara í klippingu áður en við leggjum af stað, klukkan 9 nota bene, sem mér finnst soldið snemma. En ekki sumum.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vá, Egilsstaðir, þið hljotið að stoppa einhvers staðar fyrr.. góða skemmtun og goða ferð :)