| |
Ég hef svo mikið að gera næstu daga að það er eiginlega óþægilegt. Maggi Tryggva bað mig um að þjálfa fyrir sig fram á mánudag, eitthvað um 7 eða 8 æfingar! Svo er ég að vinna í sundlauginni á morgun (nota bene eftir tvær æfingar í hveró). það þýðir að ég hef lítinn sem engan tíma til að eyða með nýju ástinni minni, (vá hvað ég væri sorglegur ef að nýja ástin mín væri stelpa og ég væri að tala um hana hér og kalla hana "ástina mína"). En ástin mín er tölva. Var nebbla að fá mér glænýjann 24" imac og hann er klikk, skjárinn er svo stór að ég þarf aldrei framar að skipta um ljósaperu í herberginu mínu, hann lýsir allt herbergið upp og næstum alla efri hæðina í húsinu. Fór að hlægja þegar ég tók hann úr kassanum, skjárinn er næstum jafn stór og borðið sem hann er á. En það voru hlaup áðan sem staðfestu að ég er að komast í form, Þarf bara að slaka á í sætindum og krúðeríi.

Er að hugsa um að skipta um síðu, samt ekki viss...
Hvernig er sú nýja? (í vinnslu samt)

http://web.mac.com/megnus/

3 ummæli:

Ágústa Arna sagði...

neinei bara svoldið sætt ef þú værir að tala um stelpu að þú myndir kalla hana átina þína!

Jóna Þórunn sagði...

Nýja síðan er ekki að meika það.

Magnús Kristinsson sagði...

ohh:-/