| |
Að reyna að klippa sig sjálfur.....

Ég var að reyna að klippa mig sjálfur...Og gekk það ömurlega eins og flest annað. Ég lít út eins og vannærður köttur með hárlos á enda stigi. Afi var svo elskulegur að gefa okkur rakvél og ætlaði ég sko að fá mér töff greiðslu...eftir 5 mín var ég farinn að öskra af hræðslu af því að hárið var eyðilagt! Mamma náði að klippa þetta aðeins til þannig að ég get kannski látið sjá mig á almannafæri á morgun.....Það er rugl að klippa sig sjálfur, farið að mínum ráðum og farið á rakarastofu.

Engin ummæli: