| |
Fór í karlmennskuhlaup með Hjalta áðan og er að drepast núna í hægri fætinum! Ég held ég sé kominn með ástæðu fyrir smá innkaupum fyrst ég er alveg að nenna þessu hlauperíi, nýja skó og kannski hlaupabuxur.
Heimir, Einar og Marie voru að fara eftir idol kvöld. Ég skil ekki afhverju maður nennir alltaf að horfa á það, alltaf jafn leyðinlegt. Ég er farinn að yfirgefa sjóvarpsherbergið í byrjun hvers þáttar þegar þau standa öll upp á sviði og syngja og dansa saman, ég bara skammast mín fyrir þeirra hönd, fæ kjánahroll. Fæ þennan sama hroll þegar Eiríkur singur, örugglega ágætis náungi, en ég skammtast mín bara of mikið fyrir hans hönd. Fá fleiri svona kjánahroll þegar horft er á idol? Svo grilluðum við Banana.

Núna í spilun: Goodnight Moon by Shivaree

1 ummæli:

Laufey Sif sagði...

hehe einhver kjána eskfirðingur greyið, þarf varla að segja meira um hann ;) En þúst hann er án efa kominn með gigg á neistaflug um versló út á þetta.