| |
Þá eru kátir dagar að byrja á morgun þar sem málfundarfélagið verður með ræðukeppni á fimmtudag, það verður gaman og fyndið. Er að leggja lokahönd á ræðuna mína og er hún nokkuð súr, en það er bara skemmtilegra fyrir þá sem horfa á. Svo keppi ég í stærðfræði fyrir liðið mitt í flóafárinu, ég sem ætlaði að reyna að sleppa við að gera eitthvað. Annars var ég að koma úr sundi, hljóp líka.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Djöfull eigum við eftir að rústa ykkur! Viljið þið ekki bara gefa þetta strax svo þið þurfið ekki að vera niðurlægðir?

Magnús Kristinsson sagði...

He He er verið að nota sálfræðina á mig, ég bugast ekki, ALDREI!

Jóna Þórunn sagði...

Flóafár, that is so last year!

Nafnlaus sagði...

Hahaha, þetta hljómar kannski soldið tough hjá þér en ég er viss um að þú varst grátandi þegar þú skrifaðir þetta.

Magnús Kristinsson sagði...

Já þarna náðiru mér!