| |
Þolidigi. Ég og nýjasta bólan mín hann Vilmundur eigum í mjög erfiðri sambúð þessa stundina. Hann er staðsettur á vörinni á mér og hefur leikið sér að því að verða eins rauður og hann getur. Svo er ekki sjéns að kreistann. ekki sjéns. hann dregur úr öllum þeim "carisma" sem ég hef....eða í raun stelur honum frá mér. þegar ég tala við fólk sé ég oft að það á mjööög bátt með að horfa framan í mig. verður alltaf að horfa í eina sek á Vilmund og svo aftur á mig. í dag klægaði mig svo mikið íann að ég ákvað að klóra mér pínku pons. bara smá. en hvað gerðist? það fór að blæða, sem væri ekki frásögufærandi nema hvað að það er ennþá að blæða! Verð dáinn fyrir sólarupprás með þessu áframhaldi.

Engin ummæli: