| |
Laugardagsnóttina þegar ég var aaaaaaalllveg að sofna ákvað ég að skella í mig einu tyggjói...FJólublátt Extra. síðan sofna ég og vakna eins og lítil prinsessa morguninn eftir kl 7...En hvar er tyggjóið? Ég skima í kringum mig en sé ekki neitt. Jæja ég fer þá bara í morgunmat. Hysja upp um mig buxurnar og fer út...Um kvöldið þegar ég var kominn heim í ró sá ég mér ekki annað fært en að skella mér á klósetið, svona í tilefni dagsins. Ég tek beltið af og byrja að þrýsta buxunum niður. Það er hægara sagt en gert. Allt bara pikkfast! Á endanum næ ég að tosa þær niður og tek eftir stóóóóórum hvítri klessu inn í rassaskálminni...Þar var tyggjóklessan komin, ég hafði misst hana út úr mér um nóttina og hafði hún endað nærbuxunum. Skil ekki hvernig, held að þær séu ónýtar:-(

Engin ummæli: