| |
Í morgun upplifði ég svolítið sem ég hef ekki upplifað áður....Ég vaknaði við að símann minn....sem ég væri búnað henda ef hann væri ekki með tvær innbyggðar vekjaraklukkur, hugsiði ykkur, ekki eina, TVÆÆÆÆÆRRR!. Næstum jafn mikil snilld eins og að hafa tvo Snake leiki í Nokia síma. Ég gat bara ómögulega munað af hverju ég átti að vakna. "hvað í andskotanum er ég að fara að gera?, það er ekki skóli í dag....eða....nei það er ekki skóli". Það rann upp fyrir mér þegar ég setti vatnið í hraðsuðuketilinn að ég væri að fara á æfingu. Annars skemmtileg æfing. Fórum í Pizza eftir hana. Ég gerðist uppreisnar maður og fékk mér hamborgara, þegar allir hinir fengu sér pizzu. Fjárhagur minn hefur sjaldan verið betri. Borgaði cash!

Engin ummæli: