ætlarðu ekki að gera eitthvað?

| |
Djöfulsins þreyta og andskoti er þetta. Er alveeeg að leka niður af þreytu. Ahhhh það er svo gott að vera kominn heim af æfingu og getað chilað in the name of sko. Er bara að slappa af með Space cowboy og félögum. En ég hef verið að hugsa....hvort ætli sé betra að búa bara einn þegar mar verður stærri...eða vera með heila fjölskyldu með sér...Kannski er gott að búa einn og nota peningana í sjálfan sig. Hafa þetta bara einfalt. sleppa við óþolandi litlar stelpur smábarnaöskur og "ætlarðu ekki að gera eitthvað Magnús? Á ÉG AÐ GERA ALLT Á ÞESSU HEIMILI? FARÐU OG VASKAÐU UPP NÚNA!". Svo er líka bara spurning um að búa á hóteli eins og í OC...þá er íbúðin bara smúluð á hverjum deigi....JÁ það er svarið! HÚRRA! ég ætla að búa á hóteli í framtíðinni.

Engin ummæli: