Heiladauður?

| |
Mar er hálf heiladauður eftir að hafa verið að vinna svona mikið...ekki gott. Hef reyndar aldrei lent í því að vera lokað á mig á mínum eiginn vinnustað..Kom og ætlaði að skila vinnubílnum en nei allt lokað og læst með hengilás:( Þannig nú er Kallinn bara með hvítum pikkup í hlaðinu.

Ég hef ætíð áttað mig á því að ég er gott myndefni, ég lít skringilega út og þarf ekki að bíða lengi eftir að sjá mig í asnalegri stellingu. í dag, 2 júní, var ég myndaður bak og fyrir af ungri konu um þrítugt, var að vinna í mínum mestu makindum þegar ég sé ekki kvennveru með myndavél í fjarska...ég horfi og hún tekur vélina niður.....ég býð smá og horfi svo aftur, þá er hún kominn með hana upp aftur, en setur hana niður þegar hún sé mig horfa....ég átta mig þá á að ef ég ætla að láta taka mynd ef mér þá verð ég að halda vinnu minni áfram og ekki horfa á hana, sem ég og gerði. Gaman að sjá hvar þessar myndir lenda....en ég held samt að ég sjái hana aldrei...hún fer örugglega bara í einkasafnið hennar.

Engin ummæli: