| |
Ég er náttla byrjaður að vinna á fullu sko, og alveg kominn með lykil að sundlauginni og allt. Frekar jákvæður fyrir sumrinu þótt ég verði ekki með marga frídaga:-( En það þýðir bara meiri peningur. Annars var ég að tékka á stöðunni í heimabankanum áðan og fékk áfall. Búinn að eyða geðveikt miklu síðustu 25 daga, það miklu að ég skammast mín fyrir það. Það versta er að þeir hafa allir farið í bíó, supway og rugl (Rugl= Nammi, pizzur, coke, bensín (ég sem á ekki einu sinni bíl!)). Svo er ég búinn að eyða meira en 5000 krónum í kaffi á svo til gerðum húsum samkvæmt yfirlitinu, ég sem fer aldrei á kaffihús. Sem betur fer á ég ennþá smá sjóð og svo skuldar fólk mér þannig að ég er ekkert að fara deyja sko...Passa mig næst þegar ég fæ útborgað og legg fyrir til þess að þurfa ekki að fara með nesti í skólan á næstu önn sem samanstæði af vatnsblandaðri mjólk í gamalli tómatsósuflösku og heimabökuðu brauði með skornum gulrótum.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Eins og George Best(frægur fótboltamaður) sagði "ég eyddi peningunum mínum í hraðskreiða bíla , djamm og stelpur afgangnum eyddi ég í vitleysu. samkvæmt þessu er Ruglið þitt ekki neitt rugl heldur bara smá hluti af "djammi"