Sem leiddi til þess....

| |
Það er svo gaman að sjá hvernig fólk starir á skeggið mitt...já þú last rétt, Magnús Már Kristinsson er kominn með SKEGG! Og ekkert smá það! en það vex reyndar ekki nema undir hökunni og smá á kinnunum:-( Ekki einu sinni á vörinni...Þetta byrjaði allt með því að ég skuldaði Tryggva penge....sem leiddi til þess að ég lét hann fá alla mína peninga sem voru um 500 Kr ísl...sem leiddi til þess að ég átti ekki penge fyrir rakvélablaði....sem leiddi til þess að ég fékk smá skeggbrodda, sem varð svo aftur á móti til þess að þeir fóru að vaxa óhóflega sem leiddi þá til þess að fólk ( eða réttara sagt Sigurlín) byrjaði að tala um þennan hársöfnuð sem "skegg". Þá leiddi eitt af öðru ég ég hugsaði um pabba minn...Núna er ég á báðum áttum um að halda þessum hárum og raka ekki í viku, eða kannski tvær vikur...sjá hvað gerist. Tók eftir að Svana var ekkert mjög hrifin áðan og ekki Sjúbíralírey heldur en allir strákarnir í skólanum taka þessu með hinnu mestu ró. reyndi að taka mynd af þessu til þess að þið sem sjáið mig ekki á deilíbeisis getið notið þessu með mér en það komu bara einhver sorglegheit út úr því...

Engin ummæli: