| |
Er það ég, eða er "Næsta ofurmódelið í bandaríkjunum 2" mesti grenjuþáttur sem framleiddur hefur verið síðan Jesús var og hét? Óvart, alveg óvart, datt ég inn á þetta áðan. Mér finnst þær heldur ekkert fallegar, bara einhverjar glasdúkkur sem hafa aldrei þurft að skeina gömlu fólki. Mér finnst vanta þessa nátturulegufegurð í þær...allar í þröngum buxum og með puttana í kokinu. Sumar stelpur sem eru með smá, hvað á mar að segja? smá forðabúr... eru bara mjög huggulegar. En allt hefur sín takmörk sko...

Engin ummæli: