| |
Gat ekki sofið síðustu nótt. Lá á rúminu, horfði bara upp á hvítt loftið. Gat ekki sofnað vegna þess að á næsta föstudag á ég, og allur skólinn að velja áfanga fyrir næstu önn. Ætla að skipta um braut, fara á listabraut. Held að ég eigi meira heima þar. Get tekið stúdent og sleppt við þriðjatungumálið. Fæ auk þess að taka kvikmyndir og myndlist sem kjörsvið:-). Hljómar mjög spennandi, Þótt ég hafi ekki fundið fyrir miklum stuðningi frá fjölskyldu:-(. Pabbi ekki alveg að sætta sig við að ég vilji verða grafískur hönnuður. Svo er það bara LHI ef guð lofar. Þarf víst að vera ógeðslega góður til að komast þarna inn...Sem ég gæti alveg verið, ef ég legg mig fram. Ég er svo hræddur um að þegar ég klára F.Su...sendi umsókn í LHI...og fæ síðan bara "neeee...við viljum ekki fá þig inn í þennan skóla"...Veit ekki hvað ég mundi gera

Engin ummæli: