| |
VAAAAAAAAAHÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ hvað ég er latur. Var upp í rúmi áðan með Gyðu, var reyndar að lesa en hún var samt þarna á rúminu með mér. Allt í einu datt mér í hug að kíkja á mail-inn minn en Gyða var á hinum endanum...hvað átti ég að gera? hreyfa mig? Átti ég að þurfa að standa upp bara til að geta komist á netið? nei nei nei, vandamálin eru til að leysa þau eins og mamma seigir alltaf. Ég tók fram mínar yndislegu tásur sem mér þykir svooooo vænt um. Opnaði ég hana með stórutá og notaði track pattið, klikkaði með hinni löppinni, ég er snillingur. Þetta gekk eins og í sögu. Náði líka að kveikja á iTunes sem og hlusta á nokkur lög, lækkaði og hækkaði hljóðið og stillti skjábirtuna. Nú þarf ég bara þvaglögn og næringu í æð...þá get ég verið sjálfum mér nægur svo mánuðum skiptir.
P.s. Fékk mér Malt áðan...en ekki Coke, og vatn í kaffinu:-)

Engin ummæli: