It'sa töff tjós

| |
Fuck it. Mig langar að taka bílinn á morgun, fara í bæinn og fara einn í bíó eða eitthvað. Kannski sund, bara ég. Fara síðan á kaffihús og þykjast lesa blöðin á meðan ég horfi á fólið í kringum mig. gera eitthvað öðruvísi, þetta er orðin of mikil rútína...Væri alveg til í að gista einn í bænum í vetrarfríinu hjá Ömmu og Afa, gerast menningarnörd og fara á söfn og sýningar, leikhús og tónleika. kaupa mér föt og borða á dýrum veitingastöðum. í fyrra horfði ég á fólk sem nördaðis til að gerast skiptinemar og hló, ég hugsaði " þau eru klikk"...en í dag sé ég hlutina í betra ljósi. Hvað með að fara til USA? Er það fyrir mig? Ég bara veit það ekki...Annað hvort yrði ég ógeðslega feiminn og heimþráin myndi ganga af mér dauðum. Ég sé mig fyrir mér flía í skjóli nætur, Selja líkama minn fyrir flugfari heim til íslands...En svo gæti þetta orðið gaman, ég væri hjá ríkri fjölskyldu sem gæfi mér bíl og vasapening, þau mundu kynna mig fyrir 22 ára dömu sem hefur lagt stund á lögfræði en aðallega einbeitt sér að módel störfum síðasta árið. Ég kæmi heim reynslunni ríkari...It'sa töff tjós

Engin ummæli: