Magnús Már Kristinsson Magnússon?

| |
Það fékkst staðfest nú á dögunum að Magnús Tryggvason (nei ekki ég, ég er Kristinsson) er ekki getulaus eins og sumir héldu. Þessi orðrómur var endanlega drepinn þegar frumburður hans fæddist þann 19 þessa mánaðar. 15.5 merkur og 52 cm. Að hans sögn var um karlkyn að ræða. Nú þarf bara að finna nafn á krílið, ég stakk uppá Magnús Már Kristinsson Magnússon en sú hugmynd hefur ekki fengið verðskuldaðan stuðning:-(. Það má til gamans geta að ég var nú ekki nema 8 eða 9 merkur þegar ég fæddist.

TIL HAMINGJU MEÐ SNÁÐANN




Engin ummæli: