| |
Það hlaut að koma að því......Amma er kominn. Hvað getur maður sagt? Hún tók á móti mér með gólum og köllum "hver er þetta! Hvað ertu að gera hérna inni?!" Hún er svo hrædd þegar ég kem inn án þess að segja "þetta er Magnús, ég er að koma inn, ekki vera hrædd þótt ég banki ekki á undan mér þótt ég eigi heima hérna". Svo lét hún mig finna svitan á enninu á sér...til að sýna mér hvað hún þurfi alltaf að púla mikið þegar hún kemur í heimsókn. Skrapp síðan niður í frystikistu til að ná mér í einn unaðspinna (lúxus íspinna) og var kellingin ekki búin að raða öllu í kistunni eftir stærð og gerð! Það finnst ekki skeinipappír hérna þessa stundina sem er ekki búið að brjóta saman og strauja...Amma er einstök

Engin ummæli: