| |
Var vakinn upp í morgun við að heyra nafnið mitt hrópað, MAGNÚS! MAGNÚS! En þar var að verki Laufey og Sjúdíralírey sem komu með ís handa mér, sko ís sem er ekki seldur á íslandi og er ekkert smá góður. Ég alveg geðveikt sáttur. Dagurinn átti að fara í tölfræðiverkefni fyrir mömmu en þar sem ég fór á æfingu datt það upp fyrir. Svo er það bara skólinn á morgun og kannski ferð í bæinn til Einars og Marie, ef guð lofar.
núna í spilun: Hung Up by Madonna

Engin ummæli: