| |
Vííííí. Rétt eins og ég bjóst við þá náði ég öllu...hefði samt viljað fá aðeins hærra í Líffræði:-(...en ég náði samt. Loksins get ég byrjað að hlakka til jólanna...fór meira að segja á jólamynd áðan...Fjallaði um lest...og lítinn dreng...sem hittir eldri mann og þeir lenda í miklum ævintýrum. Myndin, tónlistin og sagan gerði það að verkum að ég feldi NÆSTUM tár í endann...en þar sem ég er karlmennskan í holgervingi lítil drengs þá náði ég að halda þeim burt. Mæli með þessari mynd fyrir þá sem eru ekki að finna jólaandann þetta árið. Ég veit alveg hvað ég fæ frá mömmu og pabba....sem er ekki slæmt. Ég fææææææææ....Föt að eigin val, þá erum við að tala um buxur, peysu og kannski bol...Svo fæ ég heimasíðu svæði hjá Apple og tölvupóstfangið "megnus(at)mac.com ( ég veit nördalegi dauðans)....Armbandtímamæli....og Áskrift að EVO, sem er blað fyrir alvöru karlmenn. Heimir ætlar víst að gefa mér eitthvað líka...er mjög spenntur yfir því. Á víst að vera einhver einkahúmor í gjöfinni...

Engin ummæli: