| |
Það er ekki oft sem mar upplifir eitthvað nýtt. Eitthvað mjög sérstakt. Eitthvað sem er manni algjörlega framandi. Um helgina upplifði ég einmitt eitthvað nýtt og mjög framandi. Ég mætti á BreakBeat kvöld...á Snúllabar . Mætti á pleisið kl 10:30 með Heimi og var þá fátt um manninn...OK OK við fórum inn og settumst hjá Lufsunni og Einstaka kúknum. Tónlistin var fín, get ekki sagt annað. En hún var það hávær að ljósin sem eru UTAN á húsinu titruðu....Svo var ekki séns að heyra hvað sagt var við mann...bara brosa og kinka kolli, virkar alltaf. í bland við sljósashowið og allan reykinn sem kom frá reykvélinni og sígarettununnum þá skapaðist svona trans stemning. Mar sá lítið nema liti og reyk, heyrði svo bara taktfasta tónlist óma allt í hringum mann. En ok ég og Heimir vorum sem sagt ekki alveg að falla þarna inn og á tímabili fór sú hugsun um hug minn af hverju ég hafi ekki asnast til að byrja að reykja í 10 bekk. Þá hefði ég getað haldið á sígarettu með olbogann á borðinu og sveiflað hendinni upp, niður og til hliðar...þá hefði ég smollið þarna inn. Ég var nebbla ekki viss um hvort mar ætti bara að setja upp cool svip (eins og mér einum er lagið) eða dansa (nei ég dansa ekki) og auk þess var enginn að dansa...það voru allir bara að sveifla sígarettunni sinni í hálfgerðum trans....Um 11 leitið kom rúta með fólki úr bænum sem kann á svona breakbeat kvölda dæmi...þannig að ég ákvað að fylgjast með þeim...Og þá ruglaðist ég ennþá meira...Gerðu ekki neitt til að byrja með...margir voru reyndar með cool svipi en ekki neitt meira en það...Þannig að ég Heimir og lufsan fórum í smá rúnt um Hveragerði. Rúntuðum í 30 mín og vorum meira að segja stoppuð af lögreglunni....að mínum dómi til að bjóða góðan daginn...tilgangsleysi dauðans...En ég og Heimir komum aftur þarna kl 1 og þá var allt fullt út úr dyrum... OMG hugsaði ég..."núna fæ ég svita kast dauðans"....Á mjög erfitt með að vera í miklu fjölmenni sko...Núna voru allir byrjaðir að dansa, eða hreyfa sig alla vega og á einhvern óútskýranlegan hátt enduðu ég og Heimir út á dansgólfinu, ekki til að dansa þó, og mér leið og eins og mús ljónagryfju...Ég fékk nóg og hljóp út í bíl. Setti miðstöðina á fullt og hitaði á mér tásurnar.

Engin ummæli: