| |
ok...af hverju er allt hér á blgger.com á kínversku? Á það til, eins og mér einum er lagið, að fá bólur. Vil ég kalla þær stressbólur. Þær koma oftast upp á prófatímum eða þegar ég var að keppa við tíma í sundi...Þessar svokölluðu bólur koma ekki margar saman, oft erum við bara að tala um eina. Ég lenti einmitt í því núna í nótt að fá eina stóóóóra á ennið. Á ENNIÐ!. fagur rauð eins og rauð rós á sumar degi . Ástæðan fyrir því af hverju ég er að velta mér upp úr þessu er sú að þar sem ég hef mikið hár um þessar mundir, sést hún ekki. Og þar sem þetta er svokölluð "bráðabóla", þ.e kemur bara allt í einu á einni nóttu, var ég búinn að gera plön um klippingu í dag. Ég gæti verið eins og villimaður í nokkra daga í viðbót, bólulaus. Eða farið í klippingu og látið alla sjá hversu mikil bóluhjálmar ég er...of erfitt val:-(

Engin ummæli: