Með stóru bumbuna

| |
Þar sem ég vinn, hjá bænum, vinnur lítill kall, man ekki hvað hann heitir en það skiptir ekki máli. Hann er feitur og með mjöööög stutta útlimi. Mjög fyndið að sjá. Þótt hann sé ekki neitt fatlaður er stórkostlegt að sjá hann t.d. borða, hann nær varla að stinga matnum upp í sig:-). Svo er hann líka með mjöööög skrítið skap eða fas öllu heldur. Hann talar alltaf við alla eins og hann sé að skamma þá, mjöööög fyndið líka. Mér líkar vel við þennan mann, kemur mér í gott skap að hugsa um litla karlin með stóru bumbuna með skrítna fasið.

Engin ummæli: