| |
Jemin eini. Ég var að sörfa youtube, og kom niður á tónlistarmyndband með Spice Girls. 30 sek inn í lagið áttaði ég mig á því að ég kunni textan upp á 10. Þetta leiddi til þess að ég fór að skoða fleiri myndbönd með stelpunum, og eins og ég óttaðist kunni ég alla texta og melódíur betur en þær sjálfar. Það er greinilegt að ég hlustaði aðeins meira á þessa hlómsveit á mínum yngri árum en ég gerði mér grein fyrir. Þarf að endurnýja kynnin í jólafríinu

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

´´Þær´´ eiga náttlega nokkur snilldar lög það geta allir held ég tekið undir það. Eina sem gerði þær halló var að það þurfti endilega að troða þeim í föt ætluð táningsstelpum