| |
Það er ekki hægt að segja annað en ég hafi verið að vinna undanfarið. Helgin fór í vinnu, eða raun hangs. En það er það sem ég vinn við þegar ég er ekki í skóla, hangsa á vinnustaðnum í keppni við annað starfsfólk um hver nær að geyspa sem oftast. Ég er bara að verða geðveikur á því að gera ekki neitt í vinnuni, og svo er lýsingin hræðileg, og innréttingarnar ljótar. Enda tók ég mig til áður en ég labbaði heim eftir vinnu og strokaði yfir nafnið mitt á vaktaplaninu, sem og þær vaktir sem ég "tók að mér" að vinna fram til 7. Janúar. Ekki búinn að fá út úr einu einasta prófi, en ég er nú samt bara semi jákvæður fyrir þessu öllu saman. Á ekki von á öðru en að ná öllu, þótt slysin gerist. Annars óska ég öllum bara góðra áramóta:-D

1 ummæli:

Unknown sagði...

já ég hef gert nákvæmlega það sama nema hvað ég hef ekki verið á launum við það. Hef legið í leti hér heima svo þú getur verið sáttur við að geta verið slakur á bullandi yfirvinnu ;)