| |
Jæja, þá fer þessari skemmtilegu önn senn að ljúka, og þar af leiðandi próf on the next leiti. Alveg semi jákvæður gagnvart prófunum, meina næ alveg Línu, GreinBurð og TölTeikn, en ekki viss með StæGrein, eiginlega bara búinn að afskrifa hana, ætla einbeita mér að hinu og sjá svo hvað setur. Núna var ég að koma af enn einum grænmetisstaðnum sem mamma dró mig á, ég spurði hvort þeir væru með eitthvað kjöt inni á staðnum, skinkubita eða í raun bara eitthvað sem kom af einhverju sem hafði heila, Neipp ekki eitt gramm, þannig ég fékk mér eitthvað sem ég kann ekki að bera fram, svo sem ágætt á bragðið. Merkilegt hvað grænmeti getur verið gott ef það er meðhöndlað nógu mikið.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

helvítis kanínufóður og ekki hægt að ætlast til þess að fólk éti svona grænfóður!

Unknown sagði...

Jeij! loksins komment:-)

Nafnlaus sagði...

já þekki þetta að fá fá komment! en svona er lífið í bloggbransanum!

Laufey Sif sagði...

Loksins komment?? ..loksins blogg frá þér kæji.! Eitt til tvö í viku ef maður er heppin :)

Ágústa Arna sagði...

til hamingu með bloggið!!!