| |
Lít ég út fyrir að vera 52 ára gamall prestur? Þannig er mál með ávexti að það var bankað hérna í morgun og stóð kona við útidyrnar sem var að fara í viðtal hjá pabba. Pabbi var að klára busta í sér tennurnar og biður mig þess vegna að skutlast og opna. Ég opna og heilsa henni (hef aldrei séð hana áður). Hún heilsar á móti spyr mig hvort ég sé Séra Kristinn! Pabbi sagði að ég hefði átt að spila með og þykjast vera hann, í smá stund alla vega. Til gamans má geta að ég var í hettupeysu og gallabuxum þegar þetta gerðist.

2 ummæli:

Laufey Sif sagði...

Ekki grunti mig að pabbi þinn væri svona illa innrætur! :D

Ágústa Arna sagði...

hahahahahahahahahaha barstu ekki alveg örugglega tvítugur í sumar??!!