| |
Það gerist ekki oft, en þó stöku sinnum að maður fer í bíó, og fær gjörsamlega allt fyrir peninginn. Áðan lét ég gamlan draum rætast og skellti mér á nýju RAMBÓ myndina í bíó, og guð minn góður hvað hún var geðveikislega góð. Ég hló mig mátlausan af þeim senum þar sem RAMBÓ talaði (vegna þess hve þær voru hræðilega leiknar), en þar sem hann lét kúlurnar tala, fengu hjartsláttinn til að fara af stað. Framleiðendur myndarinnar hafa greinilega gert sér grein fyrir eftir hverju fólk (þá meina ég karlmenn á aldrinum 16-67 ára) eru að leita með að fara á RAMBÓ, vonlænerarnir sem Stalone lét út úr sér meðan hann brytjaði niður heilu herfylkin, voru óborganlegir. Núna er bara að vona það komi númer 5.

1 ummæli:

Unknown sagði...

Ég gleymi því ekki þegar hann var að hamraði stálið eins og alvöru

og setningina á bátnum:
WHHHOOUUJJUUuU AeERRRrREEeEeeEE YoOUu

Bogaatriðið var samt toppurinn