| |
Það var kvartað yfir útstæðum nagla í gufubaðinu í dag. Ég náttla greip eitthvað mjög þungt og stórt (skiptilykill held ég) og fór út í gufubað og lét gremju mína á óréttlæti heimsins dynja á naglanum, náði loksins að beygla hann þannig að hann mundi ekki valda neinum slysum hér eftir. Þegar ég kom inn og sagði Rúnari frá afreki mínu var mér tjáð að það hefði verið hitamælirinn sem ég hefði verið að eyðileggja (eitthvað tölvu stöff, á víst að vera mjög dýrt)...En mér til málsbótar leit þessi tittur út eins og nagli

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahahaha! Aðeins lúðalegra :P Þú sagðir mér bara að þú hefðir fixað vandamálið...ekki restina :P haha

Jóna Þórunn sagði...

Kemur ársins.