| |
Alveg að drepast í mallanum eftir versta mat sem ég hef smakkað á veitingastað. Fæ hroll bara við að hugsa um fiska eftir þetta. Þambaði AB mjók þegar ég kom heim og það gerði gott en ég er samt ekki búinn að jafna mig. Þeir tóku ekki einusinni roðið af, svo var einhver ostur og svona með, sem var bæði ógeðslegt á að líta og líka vont á bragðið. Það var samt sósan sem gerði útslagið, einhverskonar blanda af kókteilsósu og sinnepsósu. Skal viðurkenna að það var ekki besta ákvörðun lífs míns að fara svo út að hlaupa og prufukeyra nýju "Ultra fast 2000" hlaupasokkanna mína, rétt eftir matinn, en ég var ekki jafn slæmur þá.

Note to self: Ekki panta þér lax sem borinn er fram með sósu sem þú getur ekki borið fram.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta var einhver remúlaðisósa samkvæmt matseðlinum. Leit ekkert sérstaklega vel út :D