ÉG ER LIFANDI.

| |
jamm, ég er ekki búinn að skoða, né hugsa um þessa síðu lungað úr sumrinu. Bara haft svo mikið á minni könnu til að huga að. Vinnan mín tekur náttla mikið af mínum tíma, og hin vinnan tók það sem varð afgangs, þannig það var kærkomið að fá síðustu helgi fría. Einbeitti mér að því að gera ekki neitt, þótt ég hafi nú skroppið á danska daga á Stykkishólmi á laugardagskvöldið. Fyndið samt að kalla þetta danska daga, þar sem það var ekkert danskt við þá, hefði alveg verið hægt að kalla þetta Úganska daga. Tók svo sunnudaginn í slökun upp í sófa, fór einnig í hjólatúr með nýja Coldplay diskinn, það var alveg æði.
Fór svo út í nóatún áðan, og var þar alveg í klukkutíma að skoða allar vörurnar, endaði á því að kaupa svona kökumix (sem ég bakaði og kom með til mömmu færandi hendi).

2 ummæli:

Unknown sagði...

Gott að sjá að þú ert lifandi. Ég var alveg hættur að líta hingað inn. Nú verður drengurinn að fara að blogga og ekkert meira með það bara!

Laufey Sif sagði...

Farin að efast um það að þú sért nok á lífi. hummha