| |


Þannig ég fékk mér gleraugu, og þvílíkur munur! Ég var ekki viss þegar ég gekk inn í gleraugnabúðina hvað ég væri eiginlega að gera þarna, en konan vildi endilega fá að mæla mig, eða mæla augun mín. Ég hélt svo að þetta mundi taka einhverjar vikur, nei nei ég átti bara að velja mér umgjörð á staðnum, sem ég og gerði. Sagðist ekki vilja eitthvað fríkí, og þar með held ég að ég hafi móðgað gleraugakonuna, því hennar voru mjög skrýtin. Valdi einföldustu gleraugun sem ég fann, þó ekki þau ódýrustu. Ótrúlegt hvað þetta munar miklu, vissi ekki hvað ég var farinn að sjá illa. Svo eru þau líka soldið flott.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Flottur gaur :)

Laufey Sif sagði...

ótrúlegt hvað fólk verður 10000* gáfulegra þegar það setur upp gleraugu.. án þess að vera móðga þig. Þú ert alveg gáfulega án þeirra líka :)