| |
Ég vil koma hlýjum þakkarorðum og kæri kveðju til þess aðila sem ákvað að losa sig við hægðir hliðin á klósettinu í sundlauginni klukkan 3 í dag. Takk fyrir að færa rassinn á Þér ekki um 10 sm og þannig hitta ekki ofan í klósetið. Hversvegna gastu ekki sýnt mér þá sjálfsögðu kurteisi að kúka OFANÍ klósettið? Var þetta virkilega þess virði? Ég var auðvitað sendur í að þrífa þetta upp og aldrei á ævinni hef ég komist jafn langt út í ystu nöf í að æla yfir einhverju sem ég sé. Fékk svona ekka, þurfti að taka mér hlé nokkrum sinnum til að jafna mig þegar ég fann að ég var bókstaflega að fara æla yfir allt gumsið. Það hefði ég ekki höndlað, þrífa upp kúk úr öðrum samanblönduðum við mína eigin ælu. Þið sjáið þetta eflaust fyrir ykkur...Hvernig ætla ég að skeina mínum eigin börnum?

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kæri Megnús gott að þú smitaðist ekki af einhverjum ó-læknandi smitsjúkdómi við að þrífa þetta, get reyndar séð þig fyrir mér í aðgerðini. Líttu á þetta sem innlegg í reynslubankan.
Mundu æfingin skapar meistaran!!!